< Móðurborð

ASRock Z370 Extreme4 ATX LGA1151 móðurborð

ASRock Z370 Extreme4 ATX LGA1151 móðurborð

Intel Z370, 8xSATA3, 2xM.2 Ultra, GLAN, USB3.1, HDMI/DVI/VGA

Hágæða móðurborð fyrir Coffee Lake örgjörvana með öllu því helsta. Vandað spennuvirki gefur góða yfirklukkunareiginleika, Tvö háhraða M.2 tengi og 8 SATA3 tengi gefa góða gagnageymslu möguleika og vönduð hljóðlausn ásamt stuðningi við 3 skjái gefa góða margmiðlunareiginleika. Fyrir þá sem vilja græja fallega lýsingu í turninn hjá sér er ASRock RGB LED stuðningur.

kr. 29.500

Uppselt Prenta

Upplýsingar
Tegundarlýsing
Framleiðandi ASRock
Tegundarheiti Z370 Extreme4
Grunnupplýsingar
Sökkull

Tenging örgjörva við móðurborð, þarf að vera eins á móðurborði og örgjörva

LGA1151 v2
Kubbasett
Sér um samskipti örgjörvans við aðra hluti tölvunar
Intel Z370
Örgjörvastuðningur
Segir til um hvaða tegundir örgjörva ganga í móðurborðið 
Core i3, i5 og i7 Coffee Lake (LGA1151)
Stærðarform
ýmist ATX eða µATX, µATX-borð eru minni um sig, með færri tengjum en komast líka fyrir í minni kössum
ATX
Stærð borðs

Breidd og lengd móðurborðs í cm

30,5x24,4cm
Skjákortsrauf
Flest öll móðurborð hafa eina eða fleiri raufar sem eru sérstaklega ætlaðar fyrir skjákort. Í dag eru tveir staðlar af raufum í gangi:
  • AGP4x/8x - Eldri staðallinn sem er ört að hverfa af sjónarsviðinu
  • PCI-Express 16x - Nýrri og öflugri staðall sem er að verða allsráðandi
Passa þarf upp á að móðurborðið sé með rauf sem passar við það tengiviðmót sem er á skjákortinu sem maður ætlar að setja í það.
3 PCI-Express 16x (16/8+8/8+4+4)
Minni
Minnisstaðall
Vinnsluminni í tölvum í dag eru ýmist 184-pinna DDR, 240-pinna DDR2 eða 240-pinna DDR3
DDR4-4333(OC)/4000(OC)/3600(OC)/3200(OC)/2667/2400/2133
Fjöldi minnisraufa
Fjöldi minnisraufa á móðurborðinu
4 x DDR4 (240 pinna)
Hámarks minni
Mesta magn vinnsluminnis sem kemst fyrir á móðurborðinu í einu.
64GB
Drifstýringar
SATA-tengi
Fjöldi SATA tengja á móðurborðinu, SATA er nýr staðall fyrir harða diska og önnur drif sem býður upp á meiri fluttningshraða en IDE staðallinn og notar grennri kapla.
6 x SATA3 (Z370) + 2 x SATA3 (ASMedia ASM1061)
Önnur disktengi

Fjöldi og gerð annara disktengja.

2 x M.2 Ultra (32Gb/s)
RAID stuðningur

Möguleikar á að láta marga diska vinna saman ýmist til að auka öryggi gagna (RAID 1 eða 5), til að hámarka afköst (RAID 0) eða hvort tveggja (RAID 0+1)

0, 1, 5 & 0+1 (Z370)
Innbyggðir aukahlutir
Innbyggt hljóðkort

Sér um hljóðið fyrir tölvuna

ALC1220 (7.1) með TI NE5532 Premium Headset Amplifier, Purity Sound 4
Innbyggt netkort
Netkortið er notað til að tengjast öðrum tölvum eða til að tengja tölvuna við internetið gegnum router
10/100/1000Mbps (Intel® I219V)
Tengi og annað
USB-tengi
Algengasti útværi tengi-staðallinn í dag, USB2.0 hefur fluttningsgetu upp á 480Mbps en USB1.1 getur flutt 12Mbps.
17 x USB tengi (6 x USB2.0 á borði, 9 x USB3.0, 4 að aftan og 5 á borði, þar af eitt Type-C og 2 x USB3.1 A+C að aftan)
Hljóðkorts-tengi
Fjöldi tengja fyrir hljóð á móðurborðinu, bæði út og inngangar
5 mini-jack tengi
S/PDIF út
Stafrænn útgangur fyrir hljóð
1 x optical
COM-tengi

Gamall samskiptastaðall, notaður af ýmsum eldri tækjum

innvær haus
Skjátengi

Tengi fyrir innbyggða skjákortið.

VGA/DVI/HDMI
RGB tengi

Hausar fyrir RGB lýsingu.

1 x 4-pin RGB

Mitt svæði

Fréttir